EntroPay er netreikningur sem gefur þér fyrirfram greitt EntroPay sýndar-Visakort. Þetta EntroPay Visakort er hægt að nota til kaupa á netinu alls staðar þar sem tekið er við Visakortum. Þetta er örugg leið til að eyða á netinu án þess að gefa upp greiðslukortaupplýsingarnar þínar.
Það er einfalt og fljótlegt að skrá sig fyrir EntroPay-aðgangi og EntroPay Visakorti. Þú getir hlaðið fjármunum inn á EntroPay Visakortið þitt með kreditkorti, debetkorti eða staðbundinni bankamillifærslu. Eftir að fjármunirnir eru komnir inn, geturðu strax byrjað að nota kortið þitt á netinu.
Það eru margar leiðir til að fjármagna EntroPay-reikninginn þinn. Smelltu hér til að kynna þér meira um fjármögnunarleiðir sem eru í boði.
Vinsamlegast nýttu þér einhverja af þjónustunum hér fyrir neðan sem mögulega eru í boði fyrir þig.
Tölvubiðlari: Til að leggja inn þarftu bara að skrá þig inn á reikninginn þinn og smella á Cashier-hnappinn. Næst skaltu smella á EntroPay-hnappinn og fylgja leiðbeiningunum á skjánum.
App: Til að leggja inn þarftu að skrá þig inn á reikninginn þinn, velja Real Money-flipann í anddyrinu, svo smellirðu á Deposit-hnappinn. Næst skaltu smella á EntroPay-hnappinn og fylgja leiðbeiningunum á skjánum.
Vefnotendur: Til að leggja inn þarftu bara að skrá þig inn á reikninginn þinn og smella á Deposit-hnappinn. Næst skaltu smella á EntroPay-hnappinn og fylgja leiðbeiningunum á skjánum.
Fast Deposit-valmöguleikinn (hröð innlegg) er í boði fyrir innlegg með EntroPay. Fast Deposit er fljót og örugg leið fyrir þig til þess að leggja peninga inn á reikninginn þinn með þeirri aðferð sem þér hentar best.
Kynntu þér meira um hröð innlegg.
Vinsamlegast kíktu í gjaldkeragluggann til að skoða núverandi innleggstakmarkanir á reikningnum þínum.
Ekki er stuðningur við úttektir með EntroPay.
Kíktu vinsamlegast á úttektarstefnuna okkar til að finna aðrar mögulegar leiðir til að taka út fjármunina þína.
Við styðjumst við ráðandi miðmarkaðsgengi, sem gefið er upp af XE (ásamt smávægilegri þóknun ef við á), til þess að umreikna innleggin þín og úttektir í gjaldmiðilinn á reikningnum þínum. Fyrir frekari upplýsingar um þetta skaltu vinsamlegast kynna þér Skilmála og skilyrði fyrir millifærslu og gjaldmiðlaskipti raunverulegra peninga.
Við innheimtum engin gjöld fyrir að nota EntroPay. Spilarar bera sjálfir ábyrgð á þeim gjöldum sem EntroPay gæti lagt á þá.
Ef þú hefur einhverjar fleiri spurningar skaltu hafa samband við þjónustuborð.
Aftur á aðalsíðu raunpeninga.